Goðabyggð 2 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2015080102

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 555. fundur - 04.09.2015

Erindi dagsett 24. ágúst 2015 þar sem Aðalbjörg Guðmundsdóttir sækir um að gera bílastæði í suðaustur horni lóðar nr. 2 við Goðabyggð. Meðfylgjandi eru uppdrættir.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir 6 metra stæði með 7 metra úrtaki. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.