Leikskólar á Akureyri - eftirfylgni með innleiðingu laga nr. 91/2008 - tvöföld leikskólavist

Málsnúmer 2015080096

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 19. fundur - 05.10.2015

Með bréfi dagsettu 18. ágúst 2015 óskar mennta- og menningarmálaráðuneyti eftir upplýsingum um hvernig brugðist var við beiðni um tvöfalda leikskólavist.
Farið er eftir viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi leikskóladvöl barna utan lögheimilis. Hvert einstakt dæmi er skoðað með hagsmuni barnsins í huga. Fræðslustjóra falið að svara erindinu.