Skipulagsstjóri - uppsögn úr starfi

Málsnúmer 2015060186

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 206. fundur - 24.06.2015

Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar, Pétur Bolli Jóhannesson, hefur með bréfi dagsettu 18. júní 2015 sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.
Skipulagsnefnd þakkar Pétri Bolla fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Jafnframt óskar skipulagsnefnd eftir því að starfið verði auglýst sem fyrst og felur bæjarstjóra og formanni skipulagsnefndar að fylgja málinu eftir.

Skipulagsnefnd - 212. fundur - 23.09.2015

Auglýst hefur verið starf skipulagsstjóra Akureyrarkaupstaðar.
Bæjarstjóri kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu málsins.
Skipulagsnefnd felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Bjarka Jóhannesson um starf skipulagsstjóra.