Forvarnastarf - samstarf Akureyrarbæjar og Eldvarnabandalagsins

Málsnúmer 2015060111

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3500. fundur - 31.03.2016

Lögð fram drög að samkomulagi Akureyrarbæjar og Eldvarnabandalagsins um samstarf um þróun og aukningu eldvarna. Samkomulagið snýst meðal annars um innleiðingu og framkvæmd eigin eldvarnaeftirlits hjá stofnunum Akureyrarbæjar og þróun verkferla og fræðslu í því sambandi.

Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið.