Hvatning um gróðursetningu í tilefni afmælis

Málsnúmer 2015060052

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 105. fundur - 09.06.2015

Áshildur Hlín Valtýsdóttir Æ-lista mætti til fundar kl. 10:30.
Tekið fyrir erindi frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga dagsett 3. júní 2015 þar sem sambandið að ósk Skógræktarfélags Íslands hvetur öll sveitarfélög landsins til að standa sameiginlega með skógræktarfélögum landsins að gróðursetningu trjáplantna laugardaginn 27. júní nk. til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá því hún var kjörinn í embætti forseta Íslands, fyrst kvenna í heiminum sem þjóðkjörinn forseti.
Umhverfisnefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu.