Brálundur - tengingin við Miðhúsabraut, fyrirspurn um stöðu skipulagsvinnu

Málsnúmer 2015050174

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 205. fundur - 10.06.2015

Á fundi sínum þann 28. maí 2015, vísaði bæjarráð 20. lið úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa til skipulagsdeildar:

Sigurður Björgvin Björnsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa og spurðist fyrir um hvar skipulagsvinna við Brálund og tengingu við Miðhúsabraut væri stödd.
Ekki vitað á þessari stundu hvort eða hvenær farið verði í skipulagsvinnu tengda verkefninu.