Goðanes 14 - fyrirspurn um breytingu á byggingarmagni

Málsnúmer 2015040028

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 202. fundur - 29.04.2015

Erindi dagsett 8. apríl 2015 þar sem Gauti Hallsson f.h. Dexta orkutæknilausna ehf., kt. 590505-0720, spyrst fyrir um breytingar á byggingarmagni á lóð nr. 14 við Goðanes.
Skipulagsnefnd getur ekki fallist á lækkun nýtingarhlutfalls lóðarinnar og þar með lækkun gatnagerðargjalds, þar sem slík breyting myndi brjóta í bága við jafnræðis- og meðalhófsreglu vegna gjaldtöku annarra lóða í hverfinu.