Ystabæjarvegur, Hrísey - umsókn um lóð vegna dælustöðvar

Málsnúmer 2015030214

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 201. fundur - 15.04.2015

Erindi dagsett 23. mars 2015 þar sem Bergur Steingrímsson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um 16.169 m² lóð við Ystabæjarveg í Hrísey undir nýja dælustöð. Einnig er sótt um byggingarreit að stærð 10x10 m fyrir dælustöðina. Á lóðinni er einnig að finna eldra vatnsból Hríseyinga.

Meðfylgjandi er uppdráttur eftir Berg Steingrímsson.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd - 204. fundur - 27.05.2015

Erindi dagsett 23. mars 2015 þar sem Bergur Steingrímsson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um 16.169 m² lóð við Ystabæjarveg í Hrísey undir nýja dælustöð. Einnig er sótt um byggingarreit að stærð 10x10 m fyrir dælustöðina. Á lóðinni er einnig að finna eldra vatnsból Hríseyinga.

Meðfylgjandi er uppdráttur eftir Berg Steingrímsson.

Erindið var grenndarkynnt frá 17. apríl til 15. maí 2015. Engin athugasemd barst.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur lóðarskrárritara að gefa út lóðarsamning með afmörkun lóðarinnar.

Skipulagsráð - 325. fundur - 30.10.2019

Erindi Tryggva Tryggvasonar dagsett 22. október 2019, fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, þar sem óskað er eftir færslu á byggingarreit fyrir dælustöð á lóðinni Ystabæjarvegi 7 í Hrísey auk þess sem aðkoma inn á lóðina breytist.
Skipulagsráðs samþykkir erindið. Ekki er talin þörf á að grenndarkynna umsóknina og vísar afgreiðslu á byggingarleyfi fyrir dælustöð til byggingarfulltrúa.