Búnaðarkaup fyrir íþróttamannvirki - óskir íþróttaráðs um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar

Málsnúmer 2015030182

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 260. fundur - 17.04.2015

Lagt fram erindi dagsett 9. apríl 2015 frá íþróttaráði þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa vegna Landsmóts UMFÍ í íþróttamannvirkjum.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir fjárveitingu til búnaðarkaupa að upphæð 15 milljónir króna með fyrirvara um samþykki íþróttaráðs fyrir leigugreiðslum vegna búnaðarkaupanna.

Íþróttaráð - 167. fundur - 07.05.2015

Tekið fyrir erindi frá Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar sem gerði eftirfarandi bókun á fundi sínum 17. apríl 2015:
Lagt fram erindi dagsett 9. apríl 2015 frá íþróttaráði þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa vegna Landsmóts UMFÍ í íþróttamannvirkjum.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir fjárveitingu til búnaðarkaupa að upphæð 15 milljónir króna með fyrirvara um samþykki íþróttaráðs fyrir leigugreiðslum vegna búnaðarkaupanna.
Íþróttaráð samþykkir leigugreiðslur vegna búnaðarkaupa.