TV einingar v/markaðs- og samkeppnisaðstæðna

Málsnúmer 2015030121

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 2. fundur - 23.03.2015

Erindi dagsett 6. mars 2015 frá Örnu Jakobínu Björnsdóttur formanni Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, þar sem óskað er eftir upptöku TV eininga vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna.
Í hluta kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við félög háskólamenntaðra starfsmanna hjá sveitarfélögum eru ákvæði um úthlutun tímabundinna viðbótarlauna. Þau félög sem um ræðir eru aðildarfélög Bandalags háskólamanna, hluti aðildarfélaga Kennarasambands Íslands og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ekki samið um tímabundin viðbótarlaun í kjarasamningi aðila við Kjöl, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, eða önnur stéttarfélög innan BSRB.
Kjarasamninganefnd getur ekki orðið við erindinu.