Skautafélag Akureyrar - ósk um lengingu á opnun Skautahallarinnar sumarið 2015

Málsnúmer 2015030113

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 165. fundur - 19.03.2015

Erindi dagsett 5. mars 2015 frá Sigurði S. Sigurðssyni formanni SA þar sem félagið óskar eftir því að opna Skautahöllina 20. júlí í sumar, í stað 15. ágúst sbr. rekstrarsamning.
Íþróttaráð fagnar þátttöku SA í unglingalandsmóti 2015 á Akureyri og samþykkir erindið.