Tónlistarfélag Akureyrar - umsókn um samning við Menningarsjóð 2015

Málsnúmer 2015030076

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 183. fundur - 19.03.2015

Umsókn dagsett 27. febrúar 2015 frá Tónlistarfélaginu á Akureyri þar sem óskað er eftir samstarfssamningi við Akureyrarstofu með 750.000 kr. árlegu framlagi úr Menningarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gera tveggja ára samstarfssamning við Tónlistarfélag Akureyrar með 500.000 kr. árlegu framlagi.