Dansfélagið Vefarinn - umsókn um samning við Menningarsjóð 2015

Málsnúmer 2015030073

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 183. fundur - 19.03.2015

Umsókn dagsett 27. febrúar 2015 frá Dansfélaginu Vefaranum á Akureyri þar sem sótt er um samstarfssamning við Akureyrarstofu með árlegu framlagi úr Menningarsjóði að upphæð kr. 250.000.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gera tveggja ára samstarfssamning við Dansfélagið Vefarann með 150.000 kr. árlegu framlagi.