Brekkugata 13 - fyrirspurn um breytta notkun

Málsnúmer 2015020147

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 529. fundur - 26.02.2015

Erindi dagsett 23. febrúar 2015 þar sem Gústaf Línberg Kristjánsson spyrst fyrir um breytta notkun og undanþágur fyrir íbúð í húsi nr. 13 við Brekkugötu.
Með vísan til ákvæða í byggingarreglugerð, gr. 6.7.4. um íbúðir í kjallara og á jarðhæð, getur staðgengill skipulagsstjóra ekki tekið jákvætt í innréttingu íbúðar á jarðhæð.