Visit Akureyri - tengist Komdu norður

Málsnúmer 2015020038

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 180. fundur - 04.02.2015

Fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki á Akureyri kynna starfsemi sína á vefnum visitakureyri.is sem Akureyrarstofa heldur úti. Þessi þjónusta er fyrirtækjunum að kostnaðarlausu.

Síðastliðin 10 ár hefur verið farið í kynningarátak undir slagorðinu Komdu norður. Sum ferðaþjónustufyrirtæki bæjarins leggja átakinu lið, önnur ekki. Lagt er til að aðeins þau fyrirtæki sem leggja átakinu lið fái að kynna sína starfsemi á vefnum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að framvegis verði full skráning á ferðamannavefinn visitakureyri.is háð því að viðkomandi fyrirtæki skuldbindi sig til að taka þátt í kynningarátakinu Komdu norður.