Jólatréssala í miðbæ - umsókn um leyfi

Málsnúmer 2014120046

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 193. fundur - 10.12.2014

Erindi dagsett 8. desember 2014 þar sem Sigurður Guðmundsson f.h. Hórasar ehf., kt. 440608-0430, sækir um leyfi fyrir jólatréssölu í miðbæ. Einnig er sótt um að fá að staðsetja aðstöðuskúr á staðnum á meðan á jólatréssölu stendur.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og heimilar jólatréssölu á Ráðhústorgi dagana 12. desember til 24. desember 2014. Staðsetning aðstöðuskúrs skal vera í samráði við skipulagsstjóra.