Norðurgata 5 - 7 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014120045

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 194. fundur - 14.01.2015

Erindi dagsett 8. desember 2014 þar sem Gunnar Jónsson sækir um lóð nr. 5 - 7 við Norðurgötu með ósk um breytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd fagnar áhuga umsækjanda en umbeðin lóð er ekki laus til úthlutunar þar sem nú er hafin endurskoðun á deiliskipulagi Oddeyrarinnar. Skipulagsnefnd getur því ekki orðið við beiðni um úthlutun lóðarinnar en vísar ábendingum bréfritara um nýtingu lóðarinnar til endurskoðunar skipulagsins.

Skipulagsnefnd - 236. fundur - 22.06.2016

Erindi dagsett 8. desember 2014 þar sem Gunnar Jónsson sækir um lóð nr. 5-7 við Norðurgötu. Lögð fram umsögn höfundar rammaskipulags fyrir Oddeyri.
Skipulagsnefnd fagnar áhuga umsækjanda, en umbeðin lóð er ekki laus til úthlutunar, þar sem ekki er lokið við rammahluta aðalskipulags Oddeyrarinnar. Skipulagsnefnd getur því ekki orðið við beiðni um úthlutun lóðarinnar að svo stöddu.