Innrétting geymslu í Hofi

Málsnúmer 2014110223

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 177. fundur - 27.11.2014

Menningarfélag Akureyrar hefur óskað eftir því að geymslu í kjallara Hofs verði komið í það horf að hægt verði að nýta hana í stað rýmis í Sjafnarhúsinu sem Leikfélag Akureyrar hefur haft á leigu um hríð. Stjórnendum Menningarfélagsins er ljóst að verði farið í slíkar breytingar hækkar leiga á rýminu til Menningarfélagsins.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að kanna kostnað við þær breytingar sem Menningarfélagið óskar eftir.