Hús í umsjón Akureyrarstofu

Málsnúmer 2014110222

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 177. fundur - 27.11.2014

Akureyrarstofa hefur á sinni könnu nokkur hús sem talin eru hafa menningarsögulegt gildi, þ.m.t. Gudmans Minde, Sigurhæðir, Davíðshús og Laxdalshús.

Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir því við framkvæmdastjóra að gert verði yfirlit yfir það húsnæði sem Akureyrarstofa hefur yfirumsjón með.

Þar verði tilgreint hvaða starfsemi sé í hverju þeirra, hvaða samningar séu í gildi um hvert þeirra, hvaða kostnað Akureyrarstofa beri af hverju þeirra, hvaða tekjur hvert þeirra gefi af sér og hvaða hugmyndir séu uppi um notkunarmöguleika.