Breiðholt, hesthúsahverfi - deiliskipulagsbreyting Gránugötu 18

Málsnúmer 2014110072

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 192. fundur - 26.11.2014

Erindi dagsett 10. nóvember 2014 frá Bjarma A. Sigurgarðarssyni og Ólöfu Ýr Lárusdóttur sem sækja um breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfisins Breiðholts. Um er að ræða lítilsháttar stækkun á byggingarreit við Gránugötu 18. Meðfylgjandi er tillaga að deiliskipulagsbreytingu dagsett 26. nóvember 2014, sem er í samræmi við ofangreint og unnin af Árna Ólafssyni frá Teiknistofu arkitekta ehf.

Einungis er um að ræða lítilsháttar stækkun á byggingarreit innan lóðar og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Nýtingarhlutfall lóðarinnar helst óbreytt.
Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3364. fundur - 02.12.2014

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 26. nóvember 2014:
Erindi dagsett 10. nóvember 2014 frá Bjarma A. Sigurgarðarssyni og Ólöfu Ýr Lárusdóttur sem sækja um breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfisins Breiðholts. Um er að ræða lítilsháttar stækkun á byggingarreit við Gránugötu 18. Meðfylgjandi er tillaga að deiliskipulagsbreytingu dagsett 26. nóvember 2014, sem er í samræmi við ofangreint og unnin af Árna Ólafssyni frá Teiknistofu arkitekta ehf.
Einungis er um að ræða lítilsháttar stækkun á byggingarreit innan lóðar og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Nýtingarhlutfall lóðarinnar helst óbreytt.
Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.