Vopnakaup - málefni lögreglunnar

Málsnúmer 2014100161

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3362. fundur - 04.11.2014

Bæjarfulltrúi Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista óskaði eftir umræðu um málefni lögreglunnar og vopnakaup.
Almennar umræður.

Sóley Björk Stefánsdóttir lagði fram tillögu að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar beinir því til ríkisvaldsins að efla löggæslu og þar með öryggi bæði borgara og lögreglumanna með því að fjölga lögreglumönnum og auka menntun þeirra en fara mjög varlega og af skynsemi í breytingar á aðgengi lögreglumanna að vopnum.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun með 11 samhljóða atkvæðum.