Naustahverfi 1. áfangi - umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna Ásatúns 28-32

Málsnúmer 2014100086

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 190. fundur - 29.10.2014

Erindi dagsett 8. október 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um breytingu á deiliskipulagi við Ásatún 28-32.
Óskað er eftir að íbúðum verði fjölgað úr 14 í 17 og að bílastæðum norðan Ásatúns verði fjölgað um tvö. Meðfylgjandi er uppdráttur.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd - 191. fundur - 12.11.2014

Erindi dagsett 8. október 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um breytingu á deiliskipulagi við Ásatún 28-32 í 1. áfanga Naustahverfis.
Óskað er eftir að íbúðum verði fjölgað úr 14 í 17 og að bílastæðum norðan Ásatúns verði fjölgað um tvö.
Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 15. október 2014 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan er unnin af Ómari Ívarssyni frá Landslagi ehf. og er dagsett 12. nóvember 2014.

Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3363. fundur - 18.11.2014

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 12. nóvember 2014:
Erindi dagsett 8. október 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Tréverks ehf, kt. 660269-2829, sækir um breytingu á deiliskipulagi við Ásatún 28-32 í 1. áfanga Naustahverfis.
Óskað er eftir að íbúðum verði fjölgað úr 14 í 17 og að bílastæðum norðan Ásatúns verði fjölgað um tvö.
Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 15. október 2014 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan er unnin af Ómari Ívarssyni frá Landslagi ehf og er dagsett 12. nóvember 2014.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 194. fundur - 14.01.2015

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna fjölgunar íbúða var grenndarkynnt frá 19. nóvember til 17. desember 2014. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.