Upplýsingamiðstöð ferðamanna - rekstur 2015

Málsnúmer 2014100036

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 173. fundur - 14.10.2014

María Helena Tryggvadóttir verkefnisstjóri ferðamála hjá Akureyrarstofu kom á fundinn og gerði grein fyrir rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Hofi.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Maríu Helenu fyrir greinargóðar upplýsingar.

Stjórn Akureyrarstofu - 196. fundur - 23.09.2015

Farið yfir málefni Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, þróun þjónustu, rekstrarkostnaðar og framlaga Ferðamálastofu og nágrannasveitarfélaga.
Á undanförnum árum hefur þjónusta Upplýsingamiðstöðvarinnar verið aukin og bætt ár frá ári. Á sama tíma hefur framlag Ferðamálastofu og nágrannasveitarfélaganna dregist saman. Akureyrarbær hefur því einn kostað þessa auknu þjónustu. Upplýsingamiðstöðin er landshlutamiðstöð og hefur því skyldur við Norðurland allt og á því byggir framlag Ferðamálastofu. Mikilvægt er að allir hagsmunaðilar komi að því verki að bæta og auka þjónustu við ferðamenn sem fer fjölgandi ár frá ári. Gert er ráð fyrir að erlendir ferðamenn sem koma til landsins á næsta ári verði um 1,5 milljón.
Framkvæmdastjóra falið að fara í viðræður við Ferðamálastofu um aukna aðkomu að rekstrinum og boða til fundar með nágrannasveitarfélögum í Eyjafirði um endurskoðaðan samningsgrundvöll um rekstur miðstöðvarinnar.