Langahlíð 14 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2014090086

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 508. fundur - 11.09.2014

Erindi dagsett 26. ágúst 2014 þar sem Marinó Marinósson sækir um leyfi til að tvöfalda bílastæðið á lóð sinni við Lönguhlíð 14. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ingvar Ívarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir 6 metra stæði með 7 metra úrtaki, enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.