Strandgata 27 - umsókn um girðingu og bílastæði

Málsnúmer 2014090011

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 507. fundur - 05.09.2014

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Einar Skúli Hjartarson sækir um leyfi fyrir girðingu og nýju bílastæði á lóð nr. 27 við Strandgötu. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og teikning.

Skipulagsstjóri frestar erindinu þar sem samþykki nágranna í Strandgötu 25b vantar. Einnig er bent á að afmörkun lóðarinnar skal gerð í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 510. fundur - 24.09.2014

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Einar Skúli Hjartarson sækir um leyfi fyrir girðingu og nýju bílastæði á lóð nr. 27 við Strandgötu. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og teikning.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðið bílastæði og girðingu á norður- og vesturlóðarmörkum. Einnig er samþykkt girðing á austur- og suðurlóðarmörkum með fyrirvara vegna ákvæða deiliskipulags um endanlega afmörkun lóðarinnar til austurs og suðurs.