Aðalstræti 13 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2014070172

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 504. fundur - 14.08.2014

Erindi ódagsett frá Gunnari Njáli Gunnarssyni þar sem hann sækir um leyfi til að gera bílastæði syðst á lóðinni nr. 13 við Aðalstræti með aðkomu frá Duggufjöru skv. meðfylgjandi teikningu. Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda og samþykki eiganda efri hæðar Aðalstræti 15.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðið bílastæði, enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Einnig skal umsækjandi kosta frágang á svæði milli götu og lóðar.