Þátttaka framkvæmdaráðs í kostnaði við ærslabelg í Hrísey

Málsnúmer 2014070015

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 289. fundur - 15.08.2014

Lagt fram erindi dagsett 2. júlí 2014 frá hverfisráði Hríseyjar þar sem óskað er eftir þátttöku í hluta kostnaðar við leiktæki í Hrísey.

Framkvæmdaráð samþykkir að kostnaður við framkvæmd vegna leiktækis verði tekinn af fjárveitingu umhverfisátaks þessa árs og öðrum samþykktum framkvæmdum verði þá frestað.

Samþykki hverfisráðs þarf þó einnig að liggja fyrir.