Hafnarstræti/Torgið - umsókn um ritvagn

Málsnúmer 2014060177

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 498. fundur - 25.06.2014

Erindi dagsett 23. júní 2014 þar sem Árni Steinsson f.h. Votta Jehóva á Akureyri kt. 650391-1449 sækir um leyfi fyrir staðsetningu lítils ritvagns í miðbæ Akureyrar í sumar þegar veður leyfir. Ekki er um sölustarfsemi að ræða. Meðfylgjandi eru myndir.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Staðsetning ritvagns skal ekki skyggja á glugga verslunareiganda á svæðinu eða vera til ama vegna annarrar leyfisveittrar starfsemi.