Molta ehf - aðalfundur 2014

Málsnúmer 2014060139

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3417. fundur - 26.06.2014

Erindi dags 13. júní 2014 frá Ólöfu Hörpu Jósefsdóttur framkvæmdastjóra þar sem boðað er til aðalfundar Moltu ehf. mánudaginn 30. júní n.k. kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri.

Bæjarráð felur formanni framkvæmdaráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.