Strandgata 12, Hof - umsókn um skilti

Málsnúmer 2014060117

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 497. fundur - 19.06.2014

Erindi dagsett 12. júní 2014 þar sem Anna Heba Hreiðarsdóttir f.h Menningarfélagsins Hofs, kt. 670409-0740, sækir um leyfi fyrir skiltum. Meðfylgjandi eru myndir af staðsetningum skiltanna.

Skipulagsstjóri frestar erindinu. Óskað er eftir frekari upplýsingum um fjölda skilta og hæð undir skiltum sunnan húss auk umfangs og stærð skiltis norðan við hús.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 498. fundur - 25.06.2014

Erindi dagsett 12. júní 2014 þar sem Anna Heba Hreiðarsdóttir f.h. Menningarfélagsins Hofs kt. 670409-0740 sækir um leyfi fyrir auglýsingarflöggum á ljósataura norðan og sunnan húss. Meðfylgjandi eru myndir af staðsetningu stauranna. Innkomnar nánari upplýsingar þann 20. júní 2014.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið þar sem hæð undir auglýsingarflögg er 2,35 m.