Austurvegur 44-46 - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2014060094

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 182. fundur - 25.06.2014

Erindi dagsett 11. júní 2014 þar sem Haraldur Jósefsson f.h. Norðurorku kt. 550978-0169 sækir um framkvæmdarleyfi fyrir rotþró við hús nr. 42 - 55 við Austurveg og Eyjabyggð 12 - 15 í Hrísey. Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir staðsetningu rotþróarinnar og legu lagna dagsettur í maí 2014.

Skipulagsnefnd hefur yfirfarið meðfylgjandi hönnunargögn vegna framkvæmda við rotþró við Austurveg og Eyjabyggð í Hrísey, sem er í samræmi við samþykkt  deiliskipulag, og samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfisins á grundvelli 4. gr.- g "Samþykktar um skipulagsnefnd".
Eftirfarandi skilyrði setur skipulagsnefnd fyrir veitingu framkvæmdaleyfisins:
Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur.