Fornagil 15 - fyrirspurn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014060086

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 182. fundur - 25.06.2014

Erindi dagsett 10. júní 2014 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Finns Aðalbjörnssonar leggur fram fyrirspurn um byggingu bílskúrs á lóð nr 15. við Fornagil. Meðfylgjandi er uppdráttur.

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi Giljahverfis er gert ráð fyrir innbyggðum bílgeymslum í parhúsum við Fornagil en ekki stakstæðum bílskúrum. Sótt er um byggingu 50 m2 bílgeymslu sem ekki er í anda ákvæða deiliskipulagsins og engin fordæmi fyrir í hverfinu. Skipulagsnefnd bendir á að til staðar er bílgeymsla í húsinu og virðist því ekki vera augljós þörf fyrir byggingu annarrar bílgeymslu. Að auki myndi slíkt samþykki verða fordæmisgefandi gagnvart öðrum sambærilegum umsóknum.

Skipulagsnefnd hafnar því erindinu.