Bæjarstjórn - niðurfelling fundar

Málsnúmer 2014060082

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3357. fundur - 18.06.2014

Lögð fram tillaga um að fundur bæjarstjórnar sem áætlaður var 24. júní nk. verði felldur niður. Næsti fundur bæjarstjórnar verður því 1. júlí 2014 kl. 16:00.
Í 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 segir: Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.
Bæjarstjórn samþykkir niðurfellingu fundar bæjarstjórnar 24. júní 2014 með 11 samhljóða atkvæðum.