Prókúruumboð 2014-2018

Málsnúmer 2014060064

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3357. fundur - 18.06.2014

Lögð fram tillaga um prókúruumboð.
Með vísan í 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar bæjarstjórn bæjarstjóra að veita eftirtöldum starfsmönnum Akureyrarbæjar prókúruumboð:
bæjarlögmanni, Ingu Þöll Þórgnýsdóttur og fjármálastjóra, Dan Jens Brynjarssyni.
Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarráðs og/eða bæjarstjórnar þarf til.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að framangreindum aðilum verði veitt prókúruumboð í samræmi við 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Umboðin gilda meðan viðkomandi gegnir tilteknu starfi fyrir Akureyrarbæ þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils bæjarstjórnar. Jafnframt eru eldri umboð úr gildi fallin.