Þingvallastræti 22 - umsókn um niðurrif

Málsnúmer 2014050172

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 494. fundur - 30.05.2014

Erindi dagsett 26. maí 2014 þar sem Danielle Somers sækir um leyfi fyrir niðurrifi á ófullgerðu mannvirki, mhl 02, við Þingvallastræti 22.
Skipulagsstjóri samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð, þ.e. plata og sökklar sem standa upp úr jörð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.