Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2013

Málsnúmer 2014050030

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 163. fundur - 14.05.2014

Lagt fram til kynningar rektrarniðurstaða ársins 2013 fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu.

Stjórn Akureyrarstofu - 168. fundur - 28.07.2014

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir málaflokka Akureyrarstofu fyrir fyrstu 6 mánuði ársins. Jafnframt rætt um fyrirhugaða sölu Deiglunnar í Listagili sem ekki hefur gengið eftir en var mikilvægt atriði í sparnaðaráformum yfirstandandi árs.
Hlynur Hallsson forstöðumaður Sjónlistamiðstöðvarinnar sat fundinn undir þessum lið og kynnti hugmyndir miðstöðvarinnar um nýtingu á Deiglunni og öðrum rýmum sem hún hefur umsjón með í Gilinu.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hlyni gagnlegar umræður og mun með haustinu heimsækja Sjónlistamiðstöðina til að fá nánari innsýn í starfið.