Drekagil 21 - umsókn um byggingarleyfi fyrir farsímaloftneti

Málsnúmer 2014030088

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 484. fundur - 13.03.2014

Erindi dagsett 12. mars 2014 þar sem Sigurbjörn Hjörtur Guðjónsson f.h. Símans hf., kt. 500269-6779, sækir um byggingarleyfi fyrir farsímaloftneti á efstu hæð húss nr. 21 við Drekagil. Meðfylgjandi eru samþykki lóðarhafa, yfirlýsing um rafsegulgeislun og teikningar eftir Jóhann M. Kristinsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.