Geislagata 12 - fyrirspurn um gistiskála

Málsnúmer 2014030022

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 483. fundur - 06.03.2014

Erindi dagsett 4. mars 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Verkmax hf., kt. 610999-2129, sendir inn fyrirspurn um gistiskála í húsi nr. 12 við Geislagötu. Einnig er óskað eftir undanþágu frá algildri hönnun. Meðfylgjandi er teikning eftir Harald Árnason.

Staðgengill skipulagsstjóra tekur jákvætt í erindið enda uppfylli breytingin kröfur byggingarreglugerðar um slíkt húsnæði m.a. hvað varðar algilda hönnun og hljóðvarnir.