Álag og fjarvera í leikskólum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013120098

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 20. fundur - 16.12.2013

Erindi dags. 11. desember 2013 frá sjö leikskólastjórum á Akureyri. Þar kemur fram að álag og fjarvera undanfarin ár hefur haft áhrif á líðan starfsfólks í leikskólum og nú hafa fjarverur aukist til muna. Óskað er eftir samstarfi um að gerð verði greining á stöðunni og starfshópur settur á laggirnar til að leita leiða til lausna.

Skólanefnd samþykkir að fela leikskólafulltrúa að skipa starfshóp í samræmi við framkomnar óskir í erindinu.

Skólanefnd - 2. fundur - 20.01.2014

Erindi dags. 2. janúar 2014 frá Svölu Ýrr Björnsdóttur og Höllu Steingrímsdóttur f.h. trúnaðarmanna leikskólakennara í leikskólum Akureyrarbæjar. Þar er óskað eftir því að veikindaafleysing í leikskólum verði aukin svo manna megi betur veikindi starfsmanna í leikskólum. Fram kemur að við núverandi ástand sé gengið á undirbúningstíma leikskólakennara sem sé brýnt að virða og annarra leiða verði leitað til að manna veikindi starfsmanna.

Skólanefnd samþykkir að vísa erindinu til starfshóps um álag og fjarveru í leikskólum sem settur var á fót á 20. fundi skólanefndar 2013.

Skólanefnd - 5. fundur - 24.02.2014

Karl Frímannsson starfsþróunarstjóri mætti á fundinn og gerði ásamt Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa grein fyrir vinnu við verkefnið að kanna álag og fjarveru í leikskólum Akureyrarbæjar, eins og hún stendur núna.

Skólanefnd - 7. fundur - 14.04.2014

Karl Frímannsson þróunarstjóri mætti á fundinn og fór ásamt Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa yfir skýrslu um álag og fjarveru í leikskólum Akureyrarbæjar, sem lögð var fram til kynningar á fundinum.

Skólanefnd þakkar Karli og Hrafnhildi fyrir kynninguna og frestar afgreiðslu til næsta fundar.

Skólanefnd - 8. fundur - 05.05.2014

Lögð að nýju fyrir skýrsla um álag í leikskólum en afgreiðslu var frestað á síðasta fundi. Í skýrslunni eru eftirfarandi tillögur til úrbóta lagðar fram:
- Afleysingahlutfall verði aukið úr 7% í 8,33% líkt og það var árið 2008.
- Heimilt verði að ráða strax í stöður vegna langtímaveikinda.
- Gerð verði úttekt á hljóðvist í öllum leikskólum Akureyrar með tilliti til húsnæðis, skipulags og fjölda barna á hverri deild eða í hverju rými.
- Gerð verði úttekt á vinnuaðstöðu og aðbúnaði í leikskólum Akureyrar.
- Gripið verði til aðgerða til heilsueflingar meðal starfsfólks og komið á fót heilsueflingarráði í hverjum skóla líkt og fram kemur í velferðarstefnu Akureyrar.
- Gripið verði til beinna aðgerða í þeim tilgangi að hvetja starfsfólk til hreyfingar s.s. með föstum greiðslum.
- Skráning forfalla verði bætt svo hægt verði að greina betur hvers eðlis þau eru.
- Við hönnun leikskóla verði gert ráð fyrir meira rými á hvert barn en nú er raunin og tryggð verði góð vinnuaðstaða.
- Akureyrarbær beiti sér fyrir því að hluti undirbúningstíma verði bundinn við hverja deild/leikskóla en ekki eingöngu hvern leikskólakennara.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögur til úrbóta. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að fjárveitingar til leikskóla verði auknar, á þessu fjárhagsári, um kr. 6.000.000 svo hækka megi afleysingaprósentu í leikskólum úr 7% í 8,33% frá og með 1. ágúst 2014 og kr. 7.500.000 frá 1. júní 2014, til að mæta því að geta ráðið strax inn afleysingu þegar fólk fer í langtímaveikindi.

Skólanefnd samþykkir að fela leikskólafulltrúa að vinna að öðrum úrbótatillögum í samráði við skólastjóra leikskólanna.

Skólanefnd þakkar starfshópnum fyrir góða vinnu.

Bæjarráð - 3413. fundur - 15.05.2014

1. liður í fundargerð skólanefndar dags. 5. maí 2014:
Lögð að nýju fyrir skýrsla um álag í leikskólum en afgreiðslu var frestað á síðasta fundi.
Í skýrslunni eru eftirfarandi tillögur til úrbóta lagðar fram:

Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

Bæjarráð - 3414. fundur - 22.05.2014

Tekið fyrir að nýju, bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum þann 15. maí sl.

Bæjarráð samþykkir að hækka megi afleysingaprósentu í leikskólum úr 7% í 8,33% frá og með 1. ágúst 2014 og að frá 1. júní nk. verði hægt að ráða strax inn afleysingu þegar fólk fer í langtímaveikindi.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka.