Borgarsíða 22 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013110128

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 470. fundur - 21.11.2013

Erindi dagsett 18. nóvember 2013 þar sem Kristinn Sigurðsson og Guðbrandur Þór Jónsson sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum á svölum og bílskýli á húsi nr. 22 við Borgarsíðu. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Friðrik Ólafsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 494. fundur - 30.05.2014

Erindi dagsett 18. nóvember 2013 þar sem Kristinn Sigurðsson og Guðbrandur Þór Jónsson sækja um byggingarleyfi fyrir svölum og bílskýli á húsi nr. 22 við Borgarsíðu.
Innkomnar teikningar eftir Friðrik Ólafsson 22. maí 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 497. fundur - 19.06.2014

Erindi dagsett 18. nóvember 2013 þar sem Kristinn Sigurðsson og Guðbrandur Þór Jónsson sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð, svalaskýli og bílskýli á húsi nr. 22 við Borgarsíðu. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Friðrik Ólafsson.
Innkomnar teikningar 12. júní 2014.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.