Dalsbraut 1 L-M - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2013100248

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 467. fundur - 30.10.2013

Erindi dagsett 23. október 2013 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Línhússins ehf., kt. 450195-2009, og BKF ehf., kt. 590813-0790, sækir um breytingar á húsi nr. 1, hluta L-M, við Dalsbraut. Meðfylgjandi er teikning eftir Tryggva Tryggvason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 484. fundur - 13.03.2014

Erindi dagsett 23. október 2013 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Línhússins ehf., kt. 450195-2009, og BKF ehf., kt. 590813-0790, sækir um breytingar á húsi nr. 1, hluta L-M, við Dalsbraut. Meðfylgjandi er teikning eftir Tryggva Tryggvason.
Innkomnar teikningar 19. nóvember 2013. Innkomnar teikningar 13. febrúar 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði. Frestur var gefinn til 10. mars að skila inn fullnægjandi gögnum, sem ekki hafa borist að fullu. Því er gefinn viðbótarfrestur til 23. mars til að skila inn fullnægjandi gögnum. Að öðrum kosti má búast við að beitt verði heimild í 55. og 56. gr. mannvirkjalaga.  

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 486. fundur - 27.03.2014

Erindi dagsett 23. október 2013 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Línhússins ehf., kt. 450195-2009, og BKF ehf., kt. 590813-0790, sækir um breytingar á húsi nr. 1, hluta L-M, við Dalsbraut. Meðfylgjandi er teikning eftir Tryggva Tryggvason.
Innkomnar teikningar 13. febrúar 2014.
Innkomið samþykki hluta meðeigenda og samþykki lóðarhafa Gleráreyra 1 fyrir hurð á suðurhlið 17. mars 2014.

Samkvæmt bókun dagsettri 13. mars sl. var veittur frestur til 23. mars 2014 til að skila inn fullnægjandi gögnum. Þau hafa ekki öll borist. Að auki var tilkynnt um að beitt yrði heimild í 55. og 56. gr. mannvirkjalaga ef ekki yrði staðið við frest um skil á gögnum. Því er hér með tilkynnt að lagðar verða á dagsektir frá og með 7. apríl n.k. ef umbeðin gögn hafa ekki borist fyrir þann tíma.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 492. fundur - 14.05.2014

Erindi dagsett 23. október 2013 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Línhússins ehf., kt.450195-2009, og BKF ehf., kt. 590813-0790, sækja um breytingar á húsi nr. 1 við Dalsbraut. Meðfylgjandi er teikning eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar teikningar 14. maí 2014 eftir Tryggva Tryggvason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.