Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri - tilnefning fulltrúa 2013

Málsnúmer 2013090188

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3383. fundur - 26.09.2013

Erindi dags. 16. september 2013 frá Ásdísi Evu Hannesdóttur framkvæmdastjóra Norræna félagsins þar sem óskað er eftir tilnefningu Akureyrarkaupstaðar í stjórn Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri. Tilnefning Akureyrarkaupstaðar óskast send Norræna félaginu fyrir 10. október 2013.

Bæjarráð tilnefnir Hólmkel Hreinsson sem aðalmann og Maríu Helenu Tryggvadóttur sem varamann í stjórn Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri.