Glerárgata 20 - gatnagerðargjöld

Málsnúmer 2013080199

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3378. fundur - 29.08.2013

Erindi dags. 26. ágúst 2013 frá Arinbirni Þórarinssyni f.h. Þorps ehf þar sem fyrirtækið óskar eftir því að verða losað undan kvöð um greiðslu bílastæðagjalds að uppfylltum öllum skilyrðum vegna þeirrar viðbyggingar sem búið er að gefa leyfi fyrir. Um leið er óskað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um frekari breytingar á lóð.

Bæjarráð hafnar beiðni Þorps ehf um undanþágu á greiðslu bílastæðagjalds og vísar erindinu að öðru leyti til skipulagsdeildar.