Kraftlyftingafélag Akureyrar - ósk um rekstrarsamning

Málsnúmer 2013070150

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 135. fundur - 19.08.2013

Erindi dags. 7. júlí 2013 frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA þar sem ÍBA telur æskilegt að orðið verði við ósk Kraftlyftingafélags Akureyrar um rekstrarsamning.

Íþróttaráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2014.

Þröstur Guðjónsson, Haukur Valtýsson og Ármann Ketilsson frá ÍBA sátu fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð - 143. fundur - 05.12.2013

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 7. júlí 2013 frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA þar sem ÍBA telur æskilegt að orðið verði við ósk Kraftlyftingafélags Akureyrar um rekstrarsamning. Erindið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 21. ágúst sl.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu, en málið verður tekið upp í samningaviðræðum um endurnýjun samskiptasamnings við ÍBA á vormánuðum.