Áætlunarflug frá Akureyrarflugvelli 2014-2016 - beiðni um fjárhagslega ábyrgð að hluta

Málsnúmer 2013070030

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3374. fundur - 18.07.2013

Erindi dags. 5. júlí 2013 frá Trans-Atlantic ehf þar sem óskað er eftir fjárhagslegri ábyrgð Akureyrarbæjar að upphæð 212.121 evra vegna uppsetningar og framkvæmdar á áætlunarflugi frá Akureyrarflugvelli árið 2014 til loka ársins 2016.

Samkvæmt Sveitarstjórnarlögum er sveitarstjórnum óheimilt að gangast í ábyrgð fyrir þriðja aðila, bæjarráð getur því ekki orðið við erindinu.