Drottningarbraut - framkvæmdaleyfi fyrir göngu- og hjólastíg

Málsnúmer 2013060246

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 160. fundur - 26.06.2013

Önnur mál.
Erindi dagsett 24. júní 2013 frá Tómasi B. Haukssyni þar sem hann f.h. framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð göngu- og hjólastígs frá gatnamótum við flugvöll að bílaplani við gönguleið suður fyrir flugvöll. Er þessi áfangi um 700m.
Fyrir liggur tölvupóstur frá Isavia þar sem fyrirtækið samþykkir legu stígsins og framkvæmdin hefur verið kynnt Vegagerðinni.

Skipulagsnefnd hefur yfirfarið meðfylgjandi hönnunargögn um legu stígsins og samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 4. gr.- g  "Samþykktar um skipulagsnefnd".