Kosning forseta og skrifara til eins árs 2013-2014

Málsnúmer 2013050185

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3340. fundur - 04.06.2013

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.
2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.

Við kosningu forseta hlaut bæjarfulltrúi Geir Kristinn Aðalsteinsson 11 atkvæði.
Geir Kristinn Aðalsteinsson er því réttkjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Við kosningu 1. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Oddur Helgi Halldórsson 9 atkvæði, 2 seðlar voru auðir.
Lýsti forseti Odd Helga Halldórsson réttkjörinn sem 1. varaforseta.

Við kosningu 2. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Ólafur Jónsson 11 atkvæði.
Lýsti forseti Ólaf Jónsson réttkjörinn sem 2. varaforseta.

3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:

Hlín Bolladóttir

Sigurður Guðmundsson

og varamanna:

Inda Björk Gunnarsdóttir

Logi Már Einarsson

Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa átti lýsti forseti þetta fólk réttkjörið.