Hrafnagilsstræti - tillaga að nýrri gangbraut

Málsnúmer 2013050105

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 158. fundur - 29.05.2013

Erindi dagsett 14. maí 2013 þar sem Eir Andradóttir, Irma Ósk Jónsdóttir og Kristín Júlía Ásgeirsdóttir leggja fram tillögu að nýrri gangbraut. Meðfylgjandi eru loftmyndir af nýrri staðsetningu.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en vísar tillögunni til umsagnar framkvæmdadeildar.

Skipulagsnefnd - 236. fundur - 22.06.2016

Erindi dagsett 26. apríl 2016 þar sem Þóra Ragnheiður Stefánsdóttir f.h. Heimavista MA og VMA á Akureyri, óskar eftir því að gangbraut verði sett við Hrafnagilsstræti. Óskað var eftir að Lundur, fasteignafélag hefði samráð við nemendur og íbúa heimavistarinnar um staðsetningu gangbrautarinnar. Meirihluti íbúa vill gangbraut ofan Skólastígs.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu frá íbúum heimavistarinnar og vísar erindinu til framkvæmdadeildar.