Móasíða 7 A-E - fyrirspurn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2013050067

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 158. fundur - 29.05.2013

Erindi dagsett 8. maí 2013 þar sem Fríða Stefánsdóttir f.h. húsfélagsins Móasíðu 7 A-E, kt.670704-2890, leggur inn fyrirspurn um stækkun lóðar út á aðliggjandi göngustíg sem liggur að lóðinni nr. 7 A-E við Móasíðu, austan megin. Sjá nánar í meðfylgjandi gögnum.

Umræddur göngustígur tengir saman íbúðarsvæðin við Miðsíðu og því er ekki æskilegt að leggja niður stíginn á milli lóða Móasíðu 5 A-D og 7 A-E vegna öryggissjónarmiða.

Skipulagsnefnd getur því ekki orðið við erindinu en mun koma ábendingu um snjómokstur á stígnum til framkvæmdadeildar.