Hafnarstræti 107b - umsókn um byggingu sólpalls

Málsnúmer 2013050023

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 158. fundur - 29.05.2013

Erindi dagsett 6. maí 2013 þar sem Ingibjörg Baldursdóttir f.h. Ingimarshúss ehf, kt. 670511-0220, sækir um leyfi til að byggja sólpall utan lóðar Hafnarstrætis 107b. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hólmstein Snædal.

Skipulagsnefnd heimilar afnot af umbeðnu svæði við lóðina Hafnarstræti 107b til tveggja ára, þó þannig að núverandi gönguleið skerðist ekki og að almenn gönguleið verði áfram um göngustíginn.

Skipulagsnefnd - 208. fundur - 12.08.2015

Erindi dagsett 3. júlí 2015 þar sem Ingibjörg Baldursdóttir f.h. Ingimarshúss ehf, kt. 670511-0220, sækir um framlengingu á leyfi fyrir sólpalli utan lóðar við Hafnarstræti 107b.
Skipulagsnefnd heimilar afnot af umbeðnu svæði við lóðina Hafnarstræti 107b til tveggja ára, þó þannig að núverandi gönguleið skerðist ekki og að almenn gönguleið verði áfram um göngustíginn.